Auglýsing

Jćja....

27. júlí 2007 klukkan 01:03

Ég er farinn til englands í svona eins og 3 vikur, reynið nú ekki að sakna mín of mikið.
Hér er eitthvað til að hafa ofan af fyrir ykkur svona á meðan ég er í burtu...



Kv. Gaui...

Sumariđ 2007 so far....

13. júlí 2007 klukkan 02:06

Jæja þetta sumarið er ég sko búinn að vera alveg ofsa duglegur, ég byrjað iþetta allt saman á því að kaupa mér nýjann (annan) bíl sem reyndist vera MMC Pajero á svo mikið sem 33" tommu dekkjum.
 
Ég er búinn að vera svolítið duglegur að nota þennan bíl en ég er búinn að keyra eitthverja 5.000 km á eitthverjum mánuði, og þar má nú telja upp ófáar ferðirnar á ÚSÚ og uppí Arnarsetur, en var þó svona lengst var uppí Skaftafell og bíltúrinn okkar Ómars úta Snæfellsnes, þar var einmitt allt í voða og fullt af snjó.

Ég er samt búinn að gera margt fleirra í sumar eins og að viðra Arnarsetur nokkuð hressilega eins og sjá má á myndasíðunni hérna til vinsri.
Síðan er ég búinn að fara í alveg heilann helling af útköllum, ég fékk einmitt að sigla frá Bakkavör að Reykjanesvita og svo útá Snæfellsnes, það tók einmitt svona eins og 24 tíma þar sem við vorum að leita af kæjakræðurum. Síðan var alveg fullt af Hvalaskoðunarbátum að brenna, en það var nú samt aldrei neinn eldur, alveg magnað hvernig bátar geta brunnið án þess að það sé eldur um borð og síðan voru þau nú mörg fleirri, ég barasta man þetta ekki allt saman.

Hey já hva er svo málið, með ekkert af þessum commentum, ég er nú varla svona leiðinlegur... koma svo...

Kv. Gaui sumarstrákur...

Myndir...

10. júlí 2007 klukkan 03:13
Jæja núna er ég skom búinn að vera alveg voðalega duglegur og búinn að búa mér til mynda síðu og allt saman. En linkurinn á hana er svo mikið sem:

http://picasaweb.google.com/gauidiver/


En það eru þó eiginlega bara eitthverjar skátamyndir þarna inni, en það ætti samt að bætast eitthvað í þetta á næstunni...

Kv. Gaui...

Gleđilega Páska...

08. apríl 2007 klukkan 11:20

Ég fór að gramsa á youtube á þessu ágæta páskadegi og fann þar alskona video sem mér fannst alveg voðalega skemmtileg, en ykkur á nú örugglega ekkert eftir að finnast þau skemmtilega en ég ætla samt að pína ykku til að skoða þau...

http://www.youtube.com/watch?v=8XRxU2yGFeU&mode=related&search=
http://www.youtube.com/watch?v=UUOP4LJODIc
http://www.youtube.com/watch?v=KBO_1Ab2ZPI

Svo er líka alltaf ömurlegt þegar þetta gerist:
http://www.fugly.com/videos/5387/rescue_boat_accident.html

Og síðan einn atlandic svona undr lokinn
http://www.youtube.com/watch?v=fk0YFgqMPmY

og já mér langar líka i svona verkfæri, mjög töff grægja...
http://www.youtube.com/watch?v=VLvQlmYtw8c

Kv. Gaui

Ţađ ţarf víst ađ skrifa eitthvađ vođalega sniđugt hérna...

07. apríl 2007 klukkan 05:15

Ég var að lesa blogg frá honum Helga(www.dagdraumar.net) félaga mínu áðan, hann kom einmitt aðeins inná það hvernig 10. bekkur var hjá honum, þá fór ég nú aðeins að rifja það upp hvernig þetta var hjá mér á þessu tíma.

En ég var í 10.-F ef ég man rétt sem var einmitt svona tossabekkur, þarna var einmitt safnað saman öllum þeim úrhrökum sem voru í þessu árgangi í Hagaskóla.
Þetta var svona 20 manna hópur, en ég man samt bara eftir 6 sem mættu alltaf í skólann og voru eitthvað að reyna læra eitthvað hjá þessu kennurum sem voru ekki búinir að gefast upp á þessu bekk, en restin af þessu bekk var djúpt sokkin í áfengis og fíkniefnaneyslu og mættu yfirleitt í skólann bara á svona þriðjudögum, miðvikudögum og stundum á fimmtudögum, það fór svona eftir því hvort það var eitthvað partý eitthverrstaðar.
Síðan kom það oftar en ekki fyrir að það mættu bara svona 2-3 í fyrsta tíma, eða já ég held að ég geti sagt alla daga vikunar.
Það er kanski gaman að koma inná það aðég féll í samrændu prófunum í stærðfræði og dönsku þar sem að þessir kennarar höfðu gefist uppá því að kenna þessu bekk og þeim var svona nokkuð sama hvað allir voru að gera.
En ég hef alltaf viljað líkja þessu bekk við tossabekkinn í The Boston Public fyrir þá sem horfðu á það, nema það kom bara aldrei svona gaur sem var að reyna bjarga öllum krökkunumí bekknum.

En annars er voðalega lítið að frétta, ég gerði ekkert af mér á árshátiðinni síðustu helgi (allavega man ég ekki eftir neinu) og siðan skrópaði ég í köfnarferðinni í byrjun vikunar sökum vekinda.
En annars er ég bara búinn að vera voðalega duglegur að sigla, og gera við bátinn líka.

Kv. Gaui tossi...

hmm...

31. mars 2007 klukkan 04:22


Núna er ég í tómu tjóni, ég bara get ekki sofnað sem er nú eginlega hálf ömurlegt vegna þess að ég er klikkað þreittur.
En allavega síðustu nótt sofnaði ég rétt fyrir 8 í morgun og vaknaði kl 11 aftur, sem gera hvað eitthverja 4 tíma, og ég þarf að vakna einmitt kl 9 í fyrramálið og ég er ekkert að fara sofna neitt strax þannig ég er kanski að fara ná svona 6-8 tímum í svefn fyrir alveg voðalega einbeytingardrykkju, það verður nú svona líka spes...


En á morgun er einmitt árshátið hjá Björgunarsveitinni minni, maður verður yfirleitt alltaf voðalega hress á þessum samkomum, og ég geri yfirleitt allskonar hluti af mér.
T.d man ég nokkuð vel eftir einu á slíkri samkomu þar sem nokkrir félagar tóku sig saman og sprengdu kjúkling, með tilheyrandi sóðaskap (kanski rétt að taka fram að ég stóð ekki fyrir þessu athæfi). Svo í fyrra varð ég eitthvað voðalega ósáttur við svona apparat sem gefur manni svona handþurrkur þegar maður er búinn að þvo sér um hendurnar, en svona til þess að stytta þetta aðeins þá var þetta apparat ekkert notað meira, og svo er það alltaf minnistætt þegar ég og Maggi félagi minn fórum í leiðangur að leita af plástri eftir að handþurrku apparatið stórslasaði mig, en það koma allavega hellingur af áhugaverðum hlutum úr þessum leiðangri en enginn plástur samt sem áður, þannig mér bara blæddi...

En nóg um það, núna er ég víst formlega kominn í páskafrý, þannig það verður nóg að gera í næstu viku, ég kem sjálfsagt til með að byrja vikuna á því að bruna norður í land að kafa í skútuna við Akureyri með Kafarahópnum í Ársæli, þar sem við ætlum að vera í 2 daga verðum við nú að reyna kafa eitthvað meira en það, en þetta kemur allt saman í ljós.

Sláandi niðurstöður úr könnuni sem var hér til hliðar í góðan tíma, það skín í gegn að lesendur mínir vilja mér allt illt þar sem að 52% vildu meina það að öndunarvélin væri langbest, og 26% studdu sína munntóbakið, en einungis 22% fullyrtu það að þeir væru slefandi aumingjar, þetta eru einkar athyglisverðar niðurstöður og verða teknar til greina.
Og svo vil ég líka nota tækifærið og minna á nýja og mjög spennandi skoðunarkönnun hérna til hliðar.


Kv. Gaui...


P.s. þið hafið ekki húmor, aumingjar...

p.p.s Ægisbúar er langsamlega betri en Hraunbúar...

híhíhíh

26. mars 2007 klukkan 00:12


Ég er búinn að hlægja af þessu í ca. 2 tíma núna, langaði bara að deila þessu.

Kv. Gaui...

Tilraun 2 í dag...

25. mars 2007 klukkan 20:07

Ég er alveg að missa þolinmæðina gangvart þessu bloggrusli, maðu er kanski búinn að skrifa eitthvað alveg voða fint og ýtir svo á vista og þá bara hverfur allt, það er mjög óvinsælt...


En hvað um það, þá er maður eginlega alveg hættur að þora blogga í dag, maður á það víst á hættu að þetta fari fyrir brjóstið á eitthverjum fréttamanni, og hann taki uppá því að birta þetta í eitthverjum fjölmiðli. Hann Helgi félagi minn lenti einmitt í þessu þar sem hann var ásakaður um að standa fyrir drykkjukeppni, svona líka skemmtilegt þegar bindindismaðurinn sjálfur sé að standa fyrir slíkum atburði, en það má lesa allt um það á www.dagdraumar.net.


En ég fór í útilegu þar síðustu helgi með Ds sveitinni minni, við fórum uppí Arnarsetur eða The Eagals Nest, eins og dolli frændi kallaði skálann alltaf.
Það var voða gaman, fyrir utan það að það vantar eina hlið á skálann og þar af leiðandi eru svona 5 m/s ef það er eitthvað rok, og svo af ógleymdu rafmagninu sem var ekki til staðar, þannig það var kalt og TNF svefnpokinn var alveg að rokka...

Svo er ég búinn að vera á Skátaþingi alla þessa helgi, ég er að spá í að segja bara ekkert meira um það...

Síðan var aðeins tekið á því í gærkvöldi og ýmiskonar einbeytingardjús bragðaður, en það var nú samt ekki mikið af honum, maður þarf víst að spara sig aðeins fyrir næstu helgi.

En sálin mín er ennþá til sölu, hann Bjarni kom með þá fullyrðingu að ég væri ekki með sál, en það er ekki satt, sáli er ennþá til staðar og bíður bara eftir kaupanda. Óskað er eftir tilboði í sálina, það e kanski rétt að taka það fram að tilboð hafa borist...

Kv. Gaui...

Ţađ er leiđinlegt í ţessari vinnu...

09. mars 2007 klukkan 16:33
Nú leiðist mér, eða öllu heldur er ég hérna að vinna niður í samskip og það er leiðinlegt.

En ég ætla nú ekki að skæla meira yfir því. Það er mjög margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, ég var til dæmis voðalega duglegur að kafa, en það enda með óskemmtilegum afleiðingum.

Svo kláraði ég Gilwell um síðustu helgi, það var voða gaman fyrir utan það að ég var lagður í einelti allt námskeiðið af Andra, Nönnu og Danna litla, ég er á nokkuð góðri leið með það að ná mér niður á honum Danna litla en hin tvö eiga eftir að sjá eftir þessu seinna... en svona af öðru leiti var þetta mjög skemmtilegt námskeið og ég er meira að segja kominn með brúnan klút í staðinn fyrir þennann rauða.

Og ég óska hér með eftir hugmyndum í hefndaraðgerðir gegn þeim tveim, ég skoða allt!!!

Æ mér leiðist svona að ég nenni ekki að skrifa meira.

kv. Gaui

Handbolti - reykleysi - nýtt dót - SS útilega

31. janúar 2007 klukkan 03:19

ohh ég get ekkert skrifað um handbolta núna, þar sem ég er orðinn of pirraður..... Danir voru sko að vinna.

en allavega er ég ekkert búinn að reykja í mánuð núna, og fynnst mér það nú nokkuð góð frammistaða fyrir mann sem reykti svona 1 og hálfan pakka á dag, og líka í ljósi þess að ég á 3 karton, þannig ef eitthverjum vanar winton þá skal hann hringja í mig.

og já ég var að kaupa mér nýtt dót eða öllu heldur AGA divator heilgrímu, og fyrir þá sem ekki vita þá notar maður það neðansjávar eða við köfun, þetta er alveg gasalega dýrt apparat og ég hef enganveginn efni á þessu, þannig ég hef tekið uppá þvi að selja sál mína, þannig ef eitthverjum vantar nýja sál þá getið þig rætt það við mig( það er einmitt mynd af grímuni hér að neðan, mín verður gul, þannig ég er öðru vísi en allir hinir).

Buddy Phone

Svo fór ég líka í útilegu um helgina með Stórsveit Ægisbúa, ég man ekkert hvað staðurinn heitir en hann var rétt hjá Hvolsvelli, við gerðum alveg helling að skemmtilegum hlutum s.s eins og við löbbuðum uppá eitthvað fjall sem heitir það sama og ónýtur ostur eða stóri Dímon, síðan var sund á Vík málið og að ógleymdu Riskinu þar sem ég og Nanna stóðum fyrir stór tapi 2 daga í röð, þannig ég og Nanna eru eginlega bara Vélbyssufóður, en var allavega mættur í bæinn á sun á eitthvað þorrablót þar sem var ekkert áfengi, sem er súr.

Þess má einnig geta að þetta var fyrsta helgin á árinu sem ég var edrúHissa

Kv. GAUI 

Prófíll

  • Nafn: Guđjón Geir Einarsson
  • Netfang: gauidiver@gmail.com
  • Stađur: Reykjavík

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Eru konur útsendarar djöfulsins, komnar hingađ ađ útríma mannkyninu?

Innskráningar kubbur